Mynd sem sýnir Volvo S40 Generation 1.

Volvo S40 1. kynslóð. Bjóða upp á þægindi og öryggi sambærilegt við stærri 850 gerðina.

Með S40 bauð Volvo upp á sömu þægindi og öryggisbúnað í minni bílum og ökumenn stærri gerðarinnar, 850, höfðu notið í þónokkur ár.

Fljótlega var nýjum sparneytnum og spennandi útfærslum bætt við þær tvær upprunalegu (með 1,8 og 2,0 lítra vélar); allt frá sparneytninni útfærslu með dísilvél með forþjöppu til hinnar kraftmiklu T4-útfærslu (200 hestöfl) S40, sem var verðugur arftaki eldri Volvo-sportbíla á borð við PV544 Sport, P1800 og 240 Turbo.

S40 hefur hins vegar ekki einungis náð vinsældum hjá hinum almenna ökumanni heldur hefur hann einnig reynst fyrirtaks kappakstursbíll, þar sem helst ber að nefna sigur Richards Rydell í BTCC-kappakstrinum (British Touring Car Championship) á S40 árið 1998. S40 hefur einnig náð góðum árangri í STCC-kappakstrinum (Swedish Touring Car Championship).

Árið 2000 var S40 settur á markað í Norður-Ameríku með góðum árangri.

Tæknilýsing
Gerð: S40 GENERATION 1
Framleiðsla: 1995–2004
Fjöldi framleiddra bíla: 352.910
Yfirbygging: fjögurra dyra sedan
Vél: fjögurra strokka með tveimur yfirliggjandi kambásum, 1587 cc, 1948 cc og fjögurra strokka með yfirliggjandi kambás, 1870 cc dísilvél með forþjöppu
Gírskipting: fimm gíra beinskipting eða fjögurra eða fimm gíra sjálfskipting.
Hemlar: vökvaknúnir, diskahemlar á öllum hjólum
Mál: hjólhaf 256 cm