Hönnun innanrýmis

Skoðaðu XC40 Recharge rafmagnsjeppann betur að innan.

Upplýsinga- og afþreyingarskjár og tvöfalt loftunarop í Volvo XC40 Recharge-rafbíl.
Nærmynd af kristalsgírstönginni á miðstokki Volvo XC40 Recharge-rafbílsins.

Helstu hönnunareinkenni

Leðurfrítt innanrými í Volvo XC40 Recharge.

Leðurlaust innanrými

Ekkert leður er notað í innra rými XC40 Recharge-rafbíla. Með sérsniðnu áklæði úr ullarblöndu fæst fágað, skandinavískt yfirbragð – sem er jafnþægilegt hvort sem heitt eða kalt er í veðri.

Teppi og áklæði, að hluta úr endurunnu efni, í Volvo XC40 Recharge.

Sjálfbær efni

XC40 Recharge fæst með áklæðum sem eru að hluta úr endurunnu efni – og býður þannig upp á sjálfbærari valkost auk þess sem þau kallast fallega á við aðra hönnunareiginleika innra rýmisins.

Baklýst umhverfi

Hönnun innanrýmisins sækir innblástur til landslagsins og miðar að því að skapa náttúrulega, róandi birtu og nútímalegt andrúmsloft með hálfgagnsæjum, baklýstum skreytingum.

Snjallar geymslulausnir í farangursrými Volvo XC40 Recharge-rafbílsins.

Hugvitssamleg geymsla

Innra rýmið býður upp á handhægar geymslulausnir fyrir vatnsflöskur, íþróttatöskur, síma, fartölvur, skyndibita og margt fleira.

Snjallara geymslurými

Með XC40 Recharge færðu stærra, betra og fjölhæfara geymslurými en búast mætti við í svo fyrirferðarlitlum bíl án þess að dregið sé úr kröfum um þægindi eða öryggi. Það er rými fyrir farangur undir gólfinu og að framan, auk þess sem það er stórt geymslurými að aftan sem auðvelt er að hlaða í, án þröskulds og með sléttum gólffleti þegar aftursætin eru felld niður.

Rólegt, þægilegt og haganlega hannað farþegarými í Volvo XC40 Recharge.

Hannaður fyrir þig

XC40 Recharge sækir innblástur í skandinavíska fagurfræði þar sem saman fara virkni, einfaldleiki og handverk. Þægilegt, róandi og haganlega hannað farþegarýmið er með fáguðum sætum í hárri stöðu og viðbragðsgóðu stýri sem stuðlar að betri stjórn og meiri þægindum við akstur.

Opinn himinn

Hægt er að opna og halla þakglugganum og skapa rúmgott andrúmsloft sem lyftir öllum ferðum á hærra stig. Rafknúið sólskyggni dempar birtuna á sólríkum dögum og skyggt lagskipt gler eykur bæði þægindi og öryggi.

Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.

Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.