Helsti búnaður

Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera XC60 jeppa einstakan í sinni röð.

Innbyggt frá Google

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Með því að hafa Google Map innbyggt í XC60 færðu rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gerir þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Google Assistant

Notaðu handfrjálsa stjórnun til að spjalla við Google í XC60. Þú getur fengið leiðarlýsingu, notið afþreyingar og verið í samband við vini, fjölskyldu og vinnufélaga – þú segir einfaldlega „Ok Google“ til að hefjast handa.

Google Play

Vertu í tengslum við þitt stafræna líf. Með Google Play í XC60 bílnum þínum geturðu notið forrita og þjónustu sem gera hverja ferð skemmtilegri og þægilegri.

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Með því að hafa Google Map innbyggt í XC60 færðu rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gerir þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Ótakmarkað gagnamagn

Með ótakmörkuðu gagnamagni og stafræna þjónustupakkanum okkar er komin þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með XC60 og stafræna lífið.

Innbyggt frá Google

Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.

Volvo Cars appið

Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr þínum Volvo. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.

Stafrænn þjónustupakki

XC60 fylgir fjögurra ára áskrift að stafrænum þjónustupakka. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.

XC60 fylgir fjögurra ára áskrift að stafrænum þjónustupakka. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.

Þægindi og tækni

Háþróaða loftræstikerfið í Volvo XC60 hjálpar þér og farþegum þínum að njóta betri og heilbrigðari loftgæða.Hreinna loft í farþegarýminu

Háþróuð loftsían í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir njótið bættra og heilsusamlegri loftgæða, óháð aðstæðum utan bílsins. Þú getur meira að segja vaktað svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.

Hjálparhönd

Háþróuð akstursaðstoðarkerfi hjálpa til við að halda öruggri fjarlægð frá öðrum bílum með því að stilla aksturshraðann, halda bílnum á miðri akrein, gefa merki um að taka aftur af stað og jafnvel stöðva bílinn ef ökumaður verður óökufær.

Tæknileg smámynd af loftfjöðrun og dempurum á Volvo XC60.Kraftmikill og fágaður akstur

Virkur undirvagn bílsins með loftfjöðrun viðheldur réttri stillir stöðugt aksturshæð og aðlagar demparana til að auka stöðugleika og tryggja kraftmikinn og öruggan fágaðan akstur með hámarksorkunýtni á miklum hraða. Þegar aðstæður krefjast þess geturðu valið Off road stillinguna til að fá meiri hærri veghæð, hækkar bílinn um 4 cm. og veghæðin þá orðin 25 cm.

Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.Haltu einbeitingu

Sjónlínuskjárinn gerir þér kleift að fylgjast með hraðanum, fara eftir nákvæmri leiðsögn, svara símtölum og fleira. Allt þetta án þess að líta af veginum. Birtustig sjónlínuskjásins lagar sig sjálfkrafa að birtuskilyrðum og þú getur stillt kerfið að þínum eigin óskum.

Háþróaða loftræstikerfið í Volvo XC60 hjálpar þér og farþegum þínum að njóta betri og heilbrigðari loftgæða.
Tæknileg smámynd af loftfjöðrun og dempurum á Volvo XC60.
Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.
Hreinna loft í farþegarýminu

Háþróuð loftsían í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir njótið bættra og heilsusamlegri loftgæða, óháð aðstæðum utan bílsins. Þú getur meira að segja vaktað svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.

Spennandi hljómgæði

Hannað fyrir þá sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1.400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.

Glæddu tónlistina þína lífi

15 hárnákvæmt stilltir hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem er sérsniðinn að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.

Veldu þér herbergi

Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur á milli fjögurra mismunandi „herbergisstillinga“, þar á meðal „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.

Bowers & Wilkins-hljóðkerfi

Hátalarar frá Bowers & Wilkins í innanrými Volvo XC60 jeppa.

Öryggisaðstoð

Bakkað af öryggi

Umferðarskynjari með sjálfvirkri hemlun aðstoðar ökumanninn þegar bakkað er við takmarkað útsýni. Kerfið getur greint ökutæki sem nálgast bílinn frá hliðum og beitt sjálfvirkri hemlun ef með þarf.*

Aðstoð þvert á aðkomandi umferð

Öryggisaðstoðartæknin okkar getur aðstoðað þegar beygja þarf þvert á aðkomandi umferð með sjálfvirkri hemlun ef hætta er á árekstri.

Komið í veg fyrir árekstra

Hugvitssamleg öryggisaðstoð virkar að nóttu sem degi og gerir þér kleift að greina og forðast ákeyrslu á önnur ökutæki, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og stór dýr. Þetta er gert með því að vara fyrst ökumanninn við og beita því næst hemlum ef ökumaðurinn bregst ekki við.**

Minna álag í mikilli umferð

BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.

Greinir og leiðréttir skrið

Ef bíllinn fer á skrið við miðlínuna skapast hætta á árekstri við bíla úr gagnstæðri átt. Bíllinn getur greint þetta og leiðrétt og komið þér aftur á réttan kjöl á veginum.***

360° yfirsýn yfir bílastæði

360° yfirsýn fjögurra myndavéla og hliðarskynjarar þessa kerfis auka yfirsýn yfir hluti til hliðar við bílinn og auðvelda þér að leggja bílnum, óháð því hversu þröngt stæðið er.

Bakkað af öryggi

Umferðarskynjari með sjálfvirkri hemlun aðstoðar ökumanninn þegar bakkað er við takmarkað útsýni. Kerfið getur greint ökutæki sem nálgast bílinn frá hliðum og beitt sjálfvirkri hemlun ef með þarf.*

* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.