Frumútboð hlutabréfa: í dag brjótum við blað!

Í dag skráum við fyrirtækið okkar í Nasdaq-kauphöllinni í Stokkhólmi – sem er söguleg stund fyrir Volvo Cars.

Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo Cars, hringir bjöllunni í tilefni af skráningu Volvo Cars í kauphöllinni í Stokkhólmi.

Håkan Samuelsson, forstjóri Volvo Cars, hringir Nasdaq-bjöllunni í Stokkhólmi klukkan níu til að marka upphaf viðskipta.

Þessi nýi kafli í sögu okkar hefst með bjölluhringingunni og í kjölfarið ræða Håkan Samuelsson og aðrir stjórnendur við ýmsa fjölmiðla. Í þessum viðtölum útskýra þeir nánar hvernig við hyggjumst nota ágóðann af skráningunni til að gera okkur betur í stakk búin til að hrinda metnaðarfullum áætlunum okkar í framkvæmd.

„Við notum ágóðann af skráningunni til að gera okkur betur í stakk búin til að hrinda metnaðarfullum áætlunum okkar í framkvæmd.“

Ef þið viljið fylgjast með skráningunni okkar getið þið skoðað fjárfestaupplýsingarnar á vefsvæðinu okkar.

Skoða fjárfestaupplýsingar

Deila